föstudagur, júní 27, 2008

Kröftug sem Kiwanisklúbbari!

Þetta er nú meiri lame ass síðan hjá mér. Ég er alveg búin að týna sjálfri mér í aðgerðarleysi og aumingjaskap. Andskotinn! Hvar er orkan og djöfulgangurinn sem ég ætlaði alla að drepa með þegar ég var krakki? Nú er ég bara sófakartafla í yfirþyngd sem nennir ekki einu sinni að brjóta saman þvottinn sinn. Ég væri einhvers staðar rúmföst með legusár og í áskrift að svampböðun hefði einhverjum dottið í hug að gefa mér rítalín í æsku, miðað við orkufallið. Heppnir eru svampbaðarar framtíðar að ég er ekki barn í dag.

Að öðru.

Við gerðum mikla reysu við Sindri fyrir nokkru, á suðurlandið nánar tiltekið. Það var á fyrsta laugardegi eftir skjálfta. Tilgangur ferðarinnar var að sækja þennan ágæta og efnilega ungfola sem nota skyldi til að sinna hryssum hér á bæ í sumar. Þið pínu sveitó skiljið hvað ég er að fara. Sindrinn var að vonum mjög spenntur og brunuðum við af stað frá Skagaströnd kl. 8:00 að morgni, barnlaus og alles. Við stórbýlið Grænumýri (sunnan við Brú) sáum við fyrsta bíl kiwanisklúbbsins, sem við skulum nefna Glóbert. Var hann hörmulega illa staðsettur þar á blindhæð, kyrrstæður með hazardinn á, svo bóndinn með hestakerruna þurfti að taka óþarfa áhættu við að komast framhjá honum. Tilheyrandi röfl fylgdi að sjálfsögðu, frá okkur báðum. Í kringum bílinn voru ráfandi nokkrir vel merktir meðlimir kiwanisklúbbsins Glóberts, í grænum neonvestum eins og vera ber. U.þ.b. 5 kílómetrum síðar komum við að öðrum bíl kiwanisklúbbsins Glóberts. Var sá einnig með hazardinn á, en þó ekki alveg kyrrstæður. Hann sniglaðist á ca. 20 km hraða, en staðnæmdist svo, og úr aftursætinu lufsaðist neongræn feitabolla, trúlega í svefnrofunum, slæddist niður vegkantinn, týndi upp eitt bréf, andvarpaði, og lagði svo upp vegkantinn á ný og inní bíl. Bíllinn silaðist aftur af stað. Við keyrðum framhjá 3 slíkum bílum og nokkrum neongrænum silakeppum í viðbót áður en við fórum að keyra niður af heiðinni aftur. Aldrei var silakeppur í meira en 10 metra fjarlægð frá bíl.

Er það svona sem rusl er tínt í dag? Ruslatínsla í þágu umhverfisins, þar sem 5 bílar í lausagangi, með tilheyrandi hættusköpun á vegum, eldsneytisbrennslu og mengun, eru notaðir til að ferma menn milli kókdósa og bréfsnifsa á stangli í vegkantinum. Auðvitað þurfti bílstjóra í hvern bíl, þeir hlupu ekki út að tína ruslið. Ég var algjörlega bit á þessu. Hefði vel skilið einn bíl með kerru, til að staðsetja mennina og vera þeim innan handar, og hirða girðingartægjur og annað í stærri kantinum. En ekki 5 bíla á þessum stutta kafla. Ef einhver veit hver stóð fyrir þessu þá má sá hinn sami endilega gefa sig fram. Annars er auðvitað alltaf gott framtak að tína rusl.

Nú, ferðin góða endaði svo hér heima um kl. 21:00 sama dag, kl. 13:00 vorum við hjá Hellu og kl. 17:30 í Staðarskála. Hvergi var stoppað meira en 10 mínútur. Við hefðum reyndar verið aðeins fljótari hefðum við ekki villst með hestakerruna uppí efra-breiðholt. Aldrei er þetta gatnakerfi í Reykjavík eins og það var síðast þegar maður kom. Þess má svo geta að moggabíllinn fór allavega 5 sinnum framúr grænu þrumunni með hestakerruna á leiðinni frá Bifröst til Akureyrar. Hann hefur eflaust verið mjög ánægður með að við skyldum ná honum í hvert sinn sem hann þurfti að henda út blöðum. Reyndar rétt slapp hann á undan okkur eftir að hafa hent út blöðum í Víðigerði. Ég sá hvernig hann þyrlaðist af stað á planinu þegar hann sá glitta í grænu þrumuna, og hikaði ekki við að svína á þessa andstyggilegu plágu sem fylgdi honum alla leið. Skiljanlega, nýbúinn að fá okkur framúr sér við Hvammstanga eftir að hafa sjálfur tekið framúr við Reyki. Honum var mikið veifað í síðasta skiptið sem hann þeytti ryki yfir okkur, í Hörgárdalnum.

Það verður svo að fylgja sögunni að hestinum góða, sem allt þetta ferðalag snerist um, var skilað núna á dögunum, eftir mikla leit að fari heim fyrir hann. Hann reyndist eftir allt aðeins hafa eitt eista, og því ónothæfur með öllu. Eins og hann var nú álitlegur og bóndinn ánægður með hann. En ferðin var góð.

Nýjung: "Fleyg orð úr fasteignaauglýsingum" mun hefja hér göngu sína með næsta bloggi. Fylgist með.

Túrílú.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Farðu nú að taka til í herberginu þínu Birna mín!!!!
Manstu nokkuð eftir að hafa heyrt þetta hér á árum áður? Ég reyndi meira að segja að setja illa lyktandi hákal undir rúmið þitt, í þeim tilgangi að þér blöskraði sjálfri og tækir til hendinni!!!
Orkan þín var vissulega mikil en eins og með alla orku þurfti að virkja hana og beina í réttan farveg:)
-ég er alveg pollróleg þó þú fáir smá letikast...einn góðan veðurdag verður uppsöfnuð orka orðin of mikil og þá er bara að nýta hana skynsamlega...
Bara smá mömmuspeki:)

p.s. farðu nú samt að taka til í herberginu þínu!!!#%$#

Nafnlaus sagði...

Hehehehe Moggabíllinn. I know the driver!! Það hefur sennilega verið mágur minn, því hann keyrir alltaf á laugardögum. Nema nottla hann sé í fríi!! hehehe
En já, flott ruslatínsla þetta, eða réttara sagt argasta vitleysa.
Jæja, ætla að fara að reyna að hunskast inní rúm, langaði bara að segja "Hæ" :)
Bestu kveðjur

Dagný Rut sagði...

Mikið sem ég er glöð að sjá nýja færslu hérna. Ég hélt meira að segja upplestur úr henni fyrir heimafólk!!

Hlakka svo til næstu færslna (djöf.. óþjált orð) um fasteignaauglýsingar!